Sem áhorfandi frá landsbyggðinni finnst mér hreint ótrúlegt að heyra endalausar fréttir af Landspítalanum. Á hverjum einasta degi heyrir maður af nýjum uppsögnum eða einhverjum fréttum af öllu því óvissuástandi sem þar ríkir. Persónulega er mér farið að finnast þetta orðið virkilega ótraustvekjandi... Það getur ekki þótt traustvekjandi fyrir nokkurn einstakling að þurfa að leggjast inn á LSH með þessar fréttir hljómandi í bílnum á leiðinni á sjúkrahúsið! "280 manns hafa nú sagt upp störfum..." Ætli ég eigi ekki bara að skera mig upp sjálf? Fer svo bara í röntgenyndasjálfsala? Bíddu nei hvernig ætli þetta myndi virka alltsaman með engu starfsfólki?
Hvað á svo að gerast? Ef þið semjið ekki strax og engin verður í vinnu þarna, hver og hvernig á að hjálpa veiku fólki? Ætlar einhver úr seðlabankanum að koma og redda málunum þarna? Fólk hættir víst aldrei að verða veikt! Hvernig ætliði að fá allt þetta fólk aftur til starfa og hvernig ætliði virkilega að ná að rétta úr þessu og koma öllu í góðan farveg aftur? Nú spyr ég einsog fíbbl, en mun það ekki kosta ríkið helmingi meira þegar upp er staðið? Er ekki gáfulegra að gera eitthvað núna og missa ekki allt þetta starfsfólk og missa ekki allt traust fólks í landinu, fólk er virkilega að treysta á að fá sína læknisþjónustu, við treystum öll á að þetta fagfólk sé til staðar fyrir okkur! Hver er það eiginlega sem semur og ákveður hver fær hvaða laun... Heldur sú manneskja að hún verði virkilega það heppin í lífinu að hún/hann þurfi aldrei á læknisþjónustu að halda? Með þessu áframhaldi verður veikt fólk veikara... Og eykst þá ekki dánartíðnin og svo framvegis?
Þetta getur bara ekki verið svona svakalega mikið mál! Fólk á skilið peninga fyrir sína vinnu... Nú er bara að finna þessa peninga og borga þeim! Hvernig er alltaf hægt að finna peninga fyrir einsog t.d. Hörpu? (Og nú tek ég fram að ég er þó algjörlega með því að Harpa hafi verið byggð)... Hvernig er hægt að finna peninga fyrir svona einhverjum hlutum en ekki launum fyrir fólk?
Þetta á eftir að hafa alvarlegar afleiðingar, það sér hver einasti einstaklingur!
Einhverntíman fyrir nokkrum árum man ég eftir að hafa heyrt það að við á Íslandi búum við virkilega góða heilbrigðistþjónusu... Væri gaman að sjá umfjöllun um það núna!
Ég þurfti nú sjálf að liggja inni á LSH tvisvar sinnum á síðasta ári, fyrraskipti vegna brisbólgu og seinna skiptið vegna stórrar kviðarholsaðgerðar, ásamt því að fara nokkrum sinnum í rannsóknir (sjá brandara lífs míns). Á slysamótökunni kom mér virkilega á óvart hversu rosalega góð þjónustan var.. Ég hafði heyrt ljótar og leiðinlegar sögur og var hálf hrædd að koma þar inn. En ég var þó heppnari en margir aðrir, ég fékk pörfekta þjónustu! Hinsvegar tók ég alveg eftir því hvað var brjálað að gera... Ég tók sérstaklega eftir því þegar ég var komin á deildina sem ég lá á. Það kom til dæmis fyrir einn daginn að ég hringdi og hringdi bjöllunni, ég var með brisbólgu og sjúklega kvalin og mig nauðsynlega vantaði morfín... Sjúkraliði kom á svæðið en hjúkrunarfræðingur lét ekki sjá sig fyrren 45mínótm síðar.. Og jú ég hringdi á 3x á þeim tíma til að athuga afhverju þetta væri ekki komið! Hjúkrunarfræðingarnir og allt annað starfsfólk stóð sig hetjulega í öllu og ég verð þeim alltaf þakklát fyrir bæði skiptin sem ég lá inni, ef ég hefði ekki getað treyst á þessa fagaðila í einu og öllu þá hefði ég aldrei náð þeim bata sem ég gerði og aldrei liðið svona vel á sjúkrahúsinu þrátt fyrir allt!
Ég get sagt ykkur það... Ég þakka guði fyrir það að ég var veik í fyrra en ekki núna árið 2013... Því miðavið allt sem maður fær að heyra í fjölmiðlum þá er ástandið ömurlegt og hreint sorglegt. Það er alveg nóg fyrir fólk að vera veikt... Þó það þurfi ekki líka að hafa áhyggjur af þjónustunni sem það á rétt á!
Allt þetta fagfólk á meira skilið... Það er að halda í okkur lífi!
Við eigum öll skilið að þau fái hærri laun.. Við eigum öll skilið að heilbrigðistþjónustan á Íslandi batni til muna! Þetta hreinlega getur ekki verið svona rosalega flókið, gefið fólkinu almennileg laun og hættið að eyða peningunum í þetta rugl!
*Sólveig H.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli