fimmtudagur, 20. desember 2012

Sálfræðitími dagsins....

Það er kannski orðið merki um það að ég þurfi nú orðið lítið á sálfræðing lengur að halda eftir öll veikindin... Svona þegar að tíminn er farin að snúast um eitthvað svo allt allt annað en í raun var upphaflega málið. Það þarf semsagt ekkert alltaf að ræða á alvarlegu nótunum hjá sálfræðingum...

Í dag var meirasegja smá verklegt þar sem ég lofthrædda var látin standa uppá stólum og hoppá milli þeirra og ég lyftuhrædda látin æfa mig í að fara ein heilar 6lyftuferðir!! Allt voða eðlilegt og ekkert lítið hetjulegt ha!

Síðan voru flest öll samtölin á svona nótum... Sálfræðingurinn talaði um það hvað hárið mitt væri fallegt og ræddum um hárgreiðslur, ég ráðlagði um myndavélakaup og fleira sem í raun skiptir meðferð engu máli! ;)

Vildi að allir gætu átt einn svona skemmtilegan sálfræðitíma og sálfræðing ;)

*Sólveig H.

mánudagur, 17. desember 2012

Veruleikinn sem er frábær fyrir mig...

Í morgnun var hringt í mig og ég boðuð í fyrsta læknatímann í þessu 5ára eftirfylgni með brisinu, þar sem verður fylgst með þróun mála og hvort æxlið taki sig upp aftur og allt það.... Það eru blendnar tilfinningar sem komu þegar það var komin fastur tími á þetta. Fékk örlítin öran hjartslátt og hnút í magan í smá stund, er ég virkilega að fara standa í þessu enþá? Er ég virkilega að fara byrja þetta fimm ára ferli núna? Oh þessu er ekki lokið, í alvöru, mér finnst ég eiga að vera komin í frí...... Þessu líkur aldrei, ég mun þurfa að lifa með þessu alltaf!

Ég væri meira en til í að geta bara labbað frá þessu öllu saman, verið laus við allt og ekki þurft að standa í þessum læknisheimsóknum, rannsóknum, tilfinningum, hugsunum og öllu sem því fylgir. Væri næs að hoppa uppí næstu flugvél og flýja veruleikan! En lausnin er ekki flótti, lausnin er að takast á við hlutina og öðlast meiri reynslu, þekkingu og virðingu fyrir öllu.

Það góða við þessa eftirfylgni er að ef einhverjar breytingar sjást eða eitthvað finnst aftur þá er það fundið í tíma og ætti að vera hægt að kippa því í lið. Ef ég væri ekki í eftirfylgni þá myndi ég líka alltaf hafa hugan við það að halda að þetta sé komið aftur og svo framvegis....

Ég er meira seiv núna næstu 5ár en fólk úti á götu... Sem er frábært fyrir mig...

Nú hafði ég sagt eftir aðgerðina "gott að þessu er lokið"... Síðan tók bataferlið við og ég sá að þessu var hvergi lokið þar... Síðan varð ég skuggalega lík sjálfri mér aftur og sagði "það er frábært að þessu er öllu lokið og lífið er orðið eðlilegt á ný" og nú er ég að fara hefja 5ára eftirfylgni... Lífið er ekki eðlilegt svoleiðis og þessu er hvergi nærri lokið... Þessu er líklega ekki lokið fyrren eftir þessi 5ár af eftirfylgni í fyrsta lagi.

Það eru einsog ég sagið blendnar tilfinningar sem þessu fylgir... En það er ekkert annað í boði en að vera þakklátur fyrir það að fá að vera í eftirfylgni, ég er að fá fyrsta flokks þjónustu með því (Mér var sagt að vegna alvarleika og því hversu sjaldgæf veikindin væru þá flokkaðist ég undir alla þjónustu sem krabbameinssjúklingar eiga rétt á).... Og fyrir það verður maður að vera þakklátur.... Þó svo það eigi líklega eftir að reyna talsvert mikið á andlegu hliðina... Þá er bara að stilla hugan rétt og reyna að gera mér þetta eins auðvelt og möguleiki er.

Þetta verður kökubiti! ;)

*Sólveig H.

föstudagur, 14. desember 2012

Slefsmekkir og snuddubönd

Vegna eftirspurnar þá hef ég ákveðið að selja þessa frábæru slefsmekki og snuddubönd sem ég hef verið að gera úr Mandarin petit 100% bómull og má þvo á allt að 60° í þvottavél.

Snudduböndin eru á 900kr stk
Einn smekkur á 1750kr og tveir á 3000kr
1xSmekkur+1xSnudduband á 2450kr

Hér er hægt að sjá lita úrvalið hjá mér núna.. Sendið mér endilega fyrirspurnir og pantanir á solveighelgad@gmail.com :)

*Sólveig H.

laugardagur, 8. desember 2012

Æskuminning aðfangadags...

Þegar jólin fara að nálgast hrynja yfir mann ótal minningar. Minningar í kringum jólin eru svo einstaklega sterkar hjá fólki, hvort sem þær eru góðar eða slæmar, þetta er tími sem er hægt að miða við því margt er um að vera. Það er líka bæði yndislegt og erfitt í senn að rifja upp minningar og hugsa til allra þeirra sem manni þótti svo vænt um en fylgjast nú einungis með okkur úr óralangri fjarlægð.

Það er orðið örlítið jólalegt í herberginu mínu, búið að setja jólaseríur í gluggann og aðra seríu sem hangir á hillunni hjá mér, allt er nú orðið svo einstaklega kósý í þessu myrkri... Ég var að setja hreint utanum rúmið mitt í kvöld þegar það rifjuðust ósjálfrátt upp nokkrar minningar úr æsku minni um jólin. Það er nú kannski ekki að ástæðu lausu sem það gerist akkúratt þegar ég set hreint utanum rúmið hjá mér, þar sem minningin sem hellist yfir mig tengist einmitt rúmfötum.

Ég man svo skýrt eftir því þegar ég var lítil og við systurnar fórum alltaf á aðfangadagsmorgni, dúðaðar upp fyrir haus út í göngutúr til að bera út síðustu jólakortin en á þessum tíma bjuggu rosalega margir sem við þekktum hér á eyrinni í kringum okkur. Ég man við fórum alltaf í heimsókn til Langömmu Laugu í þessari ferð og fengum kakó og smákökur. Við komum líka alltaf við heima hjá Afa Jóa og skiptum á pökkum við hann, minningin við að fara heim til hans á aðfangadag er sérstaklega sterk þar sem ég fór nánast aldrei þangað nema á þeim degi. Og guð hvað hægt er að sjá eftir því í dag að hafa ekki farið oftar! En pakkarnir frá Afa Jóa litu eins út í mörg ár... Við systurnar hlóum mikið af þessu öllu saman ár eftir ár, því við vissum alltaf nákvæmlega hvað við værum að fá frá honum, grínuðumst svo aðallega með spennuna á bakvið það hvaða liti við skyldum nú eiginlega fá þetta árið... Þetta varð í raun mjög spennandi þrátt fyrir að vita nákvæmlega að við fengjum rúmföt á hverju einasta ári. Það var nú reyndar síðustu ca þrjú árin sem hann lifði sem hann kom okkur mikið á óvart og gaf okkur bækur... En hann hefði nú kannski betur haldið áfram að gefa okkur rúmföt þar sem ég sá í kvöld að mín eru nú að verða heldur slitin og því datt mér meðal annars þessi minning í hug!

Síðan Langamma Lauga lést hef ég æfinlega farið út í sveit í kirkjugarðinn til hennar á aðfangadag og kveikt á kerti hjá henni og langafa, eftir það liggur síðan leiðin í næsta kirkjugarð til Afa Jóa... Þetta er það næsta sem ég kemst því að hitta þau á aðfangadag einsog í gamladaga og hjartað mitt fyllist af einhverri ólýsanlega góðri tilfinningu við þessar heimsóknir...

Ég bíð spennt eftir jólunum í ár þrátt fyrir að að svo ótal margir hlutir hafi breyst síðan á yngri árum... Jólin verða þó á einhvern hátt svipuð og í fyrra. Ég reikna með að vakna og njóta þess að vera í náttfötunum fram að hádegi og hafa það huggulegt, í ár er auðvita markmiðið að reyndar að vinna möndlugjöfina, fara í kirkjugarðsheimsóknirnar, skella mér í jólabaðið og sparifötin, bruna af stað í messu með Ömmu, setjast svo við matarborðið með foreldrum mínum og Ömmu og njóta þess að borða yfir mig og eiga síðan enþá notarlegri stund með þeim yfir jólagjöfunum.

Allir hlutir breytast, fólk fellur frá, fólk eldist, fólk flytur, ákveðin matur hættir að fást og fleira og fleira.. Eins fastheldin og ég er í jólahefðir þá því miður breytist þetta allt. Ég vildi að ég gæti alltaf haft aðfangadag nákvæmlega eins og allt í kringum jólin en það mun einfaldlega aldrei verða þannig... Allt breytist, eina sem við vitum er að aðfangadagur kemur, þrátt fyrir breytingar, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, eina sem við getum gert er að gera okkar besta til að fá frið í hjartað, eiga góða stund, njóta og vera þakklát fyrir allt og alla.

*Sólveig H.