Þá er komið að því...
Annaðhvort þarf ég að viðurkenna það fyrir sjálfri mér (og öðrum) í dag eða á morgun að ég er með félagskvíða á frekar háu stigi... Svo afhverju ekki bara að klára það af í dag ;)
Fyrir nokkrum árum fór ég til sálfræðings sem benti mér góðfúslega á að ég væri með félagskvíða og félli ég undir allt sem þar stóð, hún vildi endilega að ég færi í félagskvíða hópmeðferð... Vitanlega þar sem ég er með félagskvíða þá fannst mér nákvæmlega ekkert fyndið við þessa hugmynd hennar og fann mér allar hugsanlegar ástæður fyrir því að sleppa við það og viti menn ég fór auðvita ekki! Ég sé eftir því í dag... Væri fínt að vera búin!
Vissir þú t.d. að félagskvíði er meðfæddur en ekki áunnin? Þegar ég heyrði það nú í gær frá sálfræðingnum mínum þá var einsog það létti á mér. Ég hafði líklega allan tíman haldið að ég væri svona skrítin að ég hafi búið þetta til sjálf. En svo er ekki, ég fæddist með félagskvíða og ég gat ekkert gert að því. Þetta passar við alla mína æsku... Ég hafði ekki gaman af félagslegum aðstæðum strax frá fæðingu, vildi alltaf vera í öruggu fangi mömmu og hafði enga löngun í fjölmenni. Í grunnskóla forðaðist ég lesblinda stúlkan það einsog heitan eldinn að lesa upphátt fyrir bekkinn og ótrúlegt en satt komst upp með það(sem í dag ég vildi að ég hefði ekki fengið)! Þangað til ég kom í framhaldskóla og þurfti að halda fyrirlestra og tala fyrir framan fólk einsog ekkert væri eðlilegra, þið getið rétt ímyndað ykkur kvíðahnútinn og flótta tilfinninguna... Hvar eru útgönguleiðirnar, hvert get ég hlaupið?
Að vera með félgskvíða er í raun ekkert grín. Það er mun flóknara og alvarlegra en fólk heldur og auðvita erfitt að gera sér grein fyrir því. Að kvíða fyrir einhverju af og til er heimsins eðlilegasti hlutur, getur meirasegja þó ótrúlegt megi veriðast í sumum tilfellum gert manni gott... En þegar kvíðinn er orðin óstjórnlega mikill þá er það langt frá því að vera eðlilegt. Sjálfsgagnrýnin er svo gríðarleg á allt sem þú segir og gerir að þó þú hafir varla hvorki sagt neitt né gert neitt sem gæti valdið skömm... Þá dæmiru þig niður í ekkert. Rangtúlkunin er í blóma lífsins!
Ég hef alltaf fílað mig betur með einni vinkonu helduren hópi vina... Einfaldlega því ég höndla ekki að tala við marga í einu, ég verð sjúklega kvíðin við þær aðstæður, tilhugsunin ein við að allir séu að horfa á mig og hlusta á mig er slæm og svo ég tali nú ekki um að ef ég myndi mögulega segja einhverja vitleysu eða gera mig að fíbbli! Stundum er ein manneskja meirasegja meira en nóg... Það að hringja símtöl getur líka verið rosalegt... Að mæta á nýjan stað og vita ekkert hvernig hlutirnir líta út þar og ekki nákvæmlega hvert maður er að fara eða hvernig fólkið lítur út þar er rosalegt kvíðaefni.... Það eru allskonar aðstæður sem eru erfiðar, ég gæti talið endalaust upp....... En læt það þó vera!
Nú gætu þó einhverjir hugsað með sér... "En Sólveig hún hefur gert þetta og þetta og þetta og ekkert mál....." Já satt... En ég hef líka oftar en ekki kvalist fyrir þær aðstæður en náð að sigra sjálfan mig að lokum! Einnig er það nú svo að ég er með meistaragráðu í því að fela þetta fyrir öllum! Svo eru þó alveg aðstæður sem maður höndlar betur en aðrar... Sem betur fer!
Þegar maður er með félagskvíða þá þarf allt og þá meina ég virkilega allt, að vera fullkomið hjá manni, svo maður verði sjálfum sér ekki til skammar og öllum líki vel við mann og manni verði ekki hafnað... Maður verður svo ofur meðvitaður um sjálfan sig, bæði útlitslega og í því sem maður segir og gerir að maður nýtur sín enganvegin, í rauninni missir maður stundum af heilu klukkutímunum því maður er svo upptekin af ranghugmyndum!
Þeir sem eru haldnir félagskvíða eru meistarar í að búa sér til ástæður fyrir því að sleppa útúr erfiðum aðstæðum... Það má segja að maður sé í rauninni alltaf að flýja aðstæður og ekki síst sjálfan sig.
En er þetta virkilega það sem maður vill, svarið er einfalt nei... Mest í heiminum myndi ég persónulega vilja sleppa við það að þurfa að hafa risastóran hnút í maganum í marga daga áðuren ég þarf að fara í óþægilegar aðstæður. Ég myndi vilja geta farið óttalaus í gegnum aðstæður sem eiga að vera öllum eðlilegar, notið lífsins... Án áhyggja af því að vera álitin furðuleg og verða mér til skammar og allt það... Ég vildi svo innilega að mér væri alveg sama. Þá væri lífið mitt svo auðvelt!
Þarf maður virkilega að vera "fullkomin"? Nei...
Ætla ég virkilega að láta þetta eyðileggja fyrir mér lífið áfram? Nei... Ég er að verða 25ára gömul og búin að leyfa þessum félagskvíða að hafa yfirstjórn á öllu mínu lífi...Það væri ósanngjarnt gagnvart sjálfri mér að gera ekkert í málunum.... Í dag ætla ég að sækja aftur um að komast á námskeið... Í dag ætla ég að hætta að vera farþegi, það er ég sem á mitt eigið líf og ég ætla að stjórna mér sjálf!
"Wake up and live"
*Sólveig H.
þriðjudagur, 22. janúar 2013
laugardagur, 19. janúar 2013
Hér eru Föt um Föt frá Fötum til Fata.....
Nú í sakleysi mínu var ég að taka upp úr ferðatösku sem ég hafði farið með í ferðalag, reyndar fyrir viku síðan og ég hreinlega ekki haft mig í að taka uppúr.. En það er önnur saga! Ég tíndi þarna hverja flíkina á eftir annarri uppúr ferðatöskunni og reyndi eftir mínu fremsta megni að koma fyrir (troða) þeim í "fataskápinn" en þannig er nú reyndar mál með vexti að ég á varla fataskáp, þetta er hálfkallaður barbie skápur, hann er svo lítill, ég er þó með snagatré líka... Eh reyndar einhverra hluta vegna, sem ég skil alls ekki, er þetta bæði troðfullt af fötum og hvergi neitt einasta pláss, réttast sagt flæða fötin útúr skápnum svo hurðarnar lokast ekki lengur!! Ég er þó búin að koma hluta fata minna í annan fataskáp á heimilinu....
Ég hafði í þessu ferðalagi mínu í síðustu viku ótúlegt en satt farið á útsölurnar og náð að versla nokkrar spjarir! Ég get svo sagt ykkur það krakkar mínir að þarna stend ég og tek upp úr töskunni hvorki meira né minna en 5 nýjar skyrtur og það sem meira var að 3þeirra voru næstum allar eins!! Ég furða mig á þessu og hlæ af þessu um leið og ég held á þeim öllum, afhverju í ósköpunum keypti ég þrjár næstum eins flíkur? Hvað í ósköpunum hef ég að gera með þær allar? Ekki einsog mig hafi vantað þær allar eitthvað svakalega mikið! Tvær þeirra eru nákvæmleg eins nema bara í sitthvorum litnum (mjög nauðsynlegt) og ein er í sama lit nema bara öðru sniði! Afhverju ekki bara að kaupa alla liti sem mögulegir eru, maður er í mismunandi gír og langar að vera í mismunandi litum, einsgott að eiga nægt úrval maður minn!!
Ég stend þarna og furða mig á þessu í smá tíma... Hugsa með mér, afhverju í alvörunni ég hafi keypt þetta allt... Hvað er það sem gerist í líkamanum hjá manni þegar maður er staddur í fataverslun, hvað er það sem lætur mann "þurfa" alveg líka svona lífsnauðsynlega að kaupa, kaupa og kaupa? Ég sé þetta aldrei í búðinni, hvað þetta er í raun ruglað en svo þegar heim er komið þá hlæ ég og næstum græt yfir því hvernig ég fari að því að missa alla rökhugsun við afgreiðsluborðið! Það er þó jákvætt að ég er alls ekki á hverjum degi né í hverri viku að versla mér föt. Myndi hreinlega ekki höndla sjálfan mig í "verslunarþunglyndi" það oft!!
Börnin og eða fólkið í Afríku og annarstaðar í heiminum/landinu á varla föt... En ég, já nei ég þarf að eiga tonn af fötum! Satt að segja er ég hræðilega léinleg í því að fara í gegnum fötin mín og gefa frá mér, alltaf virðist ég búa til einhver furðuleg tilfinninga tengsl við fötin mín, þau eiga öll sína sögu og mig langar að halda þeim öllum, alltaf... Nema sokkunum mínum, mér er næstum slétt sama um þá, á reyndar enþá nokkur pör af myndasokkum sem ég átti sem barn (klikkun).
Málið er bara að það er einfaldlega svo gaman að eiga fín föt, eiga föt til skiptana, fara út í nýjum fötum, vakna á morgnanna og máta amk 4kjóla og 6mismunandi leggings/sokkabuxur við, hætta svo við að vera í kjól og fara í buxur og máta 5boli og 3peysur og 5skyrtur!!... Hætta svo við það og fara í aðrar buxur... Æ þið vitið, þetta bara gleður mann svo. Eða svona þangað til maður fattar að maður á engin föt til að fara í!!!! (ræt) Já og í þessu er herbergið/heimilið orðið þakið fötum og "fataskápurinn" komin í ruglið!
Á morgun ætla ég að fara í það að græja betri fata aðstöðu í herberginu hjá mér... Og reyna að rjúfa sterk tilfinningaleg tengsl við nokkrar flíkur og gefa frá mér, svona svo aðrir geti notið góðs af! Þó það falli nokkur tár á meðan... Ég meina, ég man ekki einu sinni hvað er aftast í fataskápnum hjá mér... En hey ég á samt pottþétt eftir að að þurfa nota þetta einhverntíman..... Eða? Nei...?

miðvikudagur, 16. janúar 2013
Markmiðið...
Um leið og mig langar að þakka fyrir frábær viðbrögð við skrifunum mínum og hreint ótrúlega falleg comment, skilaboð og yndisleg orð um Brandara lífs míns... Þá langar mig að deila því með ykkur að ég fór í fyrsta tékk í fimmáraeftirlitinu um daginn, þar var einungis verið að athuga hvort brisið starfi ekki á réttan hátt og komu niðurstöðurnar hvorki meira né minna en pörfektar út. Og næst mæting aftur eftir 6mánuði... Gleðigleði!
Ég er búin að vera svakalega öflug í sjúkraþjálfununni, fer 3x í viku að gera æfingar, ná upp styrk og þoli og gengur þetta allt framar björtustu vonum allra og þá helst auðvita mínum eigin! Hef bætt mig alveg hreint ótrúlega mikið frá aðgerð og í hvert einasta skipti eru framfarir og leiðin liggur greinilega uppá við og það er svo gaman! Er nú komin með markmið sem ég ætla ná fyrir maí mánuð en það er að vera komin í það eðlilegt og gott form að ég geti farið út að hjóla þegar veður verður til... Ætla hjóla einsog vitleysingur útum allar sveitir í sumar, upp og niður brekkur, horfa á fallega landið mitt, hlusta á fuglasönginn og þögnina og njóta lífsins ;) Mikið hlakka ég rosalega til sumarsins :)

fimmtudagur, 3. janúar 2013
Minning um konu
Nú hellast yfir mig minningarnar... Ykkur að segja er ég hálf miður mín yfir þessu...
Þegar ég lá nú á LSH í október var þar kona sem ég þekkti ekki neitt en ég sá á hverjum einasta degi, oft á dag, hún brosti alltaf til mín og bauð mér góðan daginn. Það var ekki fyrren á sjöunda degi þegar hún situr á ganginum að hún stoppar mig, ég sest hjá henni og við byrjum að spjalla saman. Þessi kona var yndisleg. Hún sagðist öfunda mig heilmikið af því að vera í einkaherberginu sem ég var í, hún hefði verið þar síðast þegar hún var þarna og leið líkt og mér einsog prinsessu þar inni. Hún sagði mér hvernig veikindi hún væri að glíma við og gaf mér nokkur góð ráð. Við töluðum svo um daginn og veginn og komumst að því að við þekktum sama fólk(skemmtilega lítið land sem við búum í). Þessi kona var svo endalaust sterk! Seinna þennan dag þá fékk hún að útskrifast... Ég var akkúratt að taka gönguæfingu á ganginum þegar hún er að fara heim ásamt manninum sínum sem einnig brosti alltaf til mín á hverjum degi. Þau gengu að mér, horfðu bæði beint í augun á mér óskuðu mér alls hins besta með framhaldið og klöppuðu á öxl mína... Þetta var svo innilegt og fallegt og hefur síðan setið fast í huga mér. Í dag fékk ég þær fréttir að þessi kona sé látin.... Ég þekkti hana ekki neitt nema af þessum 10mínótum sem við spjölluðum saman á ganginum, en þetta er mér svo skrítið, manneskja sem var á sama tíma og ég á sjúkrahúsinu er nú komin á annan stað.
Nú sé ég en betur hvað ég má vera þakklát fyrir líf mitt....
Blessuð sé minning þessarar sterku konu.
*Sólveig H.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)