miðvikudagur, 16. janúar 2013

Markmiðið...

Um leið og mig langar að þakka fyrir frábær viðbrögð við skrifunum mínum og hreint ótrúlega falleg comment, skilaboð og yndisleg orð um Brandara lífs míns... Þá langar mig að deila því með ykkur að ég fór í fyrsta tékk í fimmáraeftirlitinu um daginn, þar var einungis verið að athuga hvort brisið starfi ekki á réttan hátt og komu niðurstöðurnar hvorki meira né minna en pörfektar út. Og næst mæting aftur eftir 6mánuði... Gleðigleði!

Ég er búin að vera svakalega öflug í sjúkraþjálfununni, fer 3x í viku að gera æfingar, ná upp styrk og þoli og gengur þetta allt framar björtustu vonum allra og þá helst auðvita mínum eigin! Hef bætt mig alveg hreint ótrúlega mikið frá aðgerð og í hvert einasta skipti eru framfarir og leiðin liggur greinilega uppá við og það er svo gaman! Er nú komin með markmið sem ég ætla ná fyrir maí mánuð en það er að vera komin í það eðlilegt og gott form að ég geti farið út að hjóla þegar veður verður til... Ætla hjóla einsog vitleysingur útum allar sveitir í sumar, upp og niður brekkur, horfa á fallega landið mitt, hlusta á fuglasönginn og þögnina og njóta lífsins ;) Mikið hlakka ég rosalega til sumarsins :)

*Sólveig H.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli