Um mig


Nafn: Sólveig Helgadóttir 
Netfang: 
solveighelgad@gmail.com
Fædd: 10.júlí 1988
Heimabær: Akureyri


Er ósköp venjulega óvenjuleg stúlka sem ber nafnið Sólveig, fædd árið 1988, fædd og uppalin Akureyringur. Stúdent frá Félagsfræðibraut úr Verkmenntaskólanum á Akureyri og vinn nú sem klinka á Tannlæknastofu. Mín helstu áhugamál eru ljósmyndun, tónlist, íþróttir og að prjóna og hekla. 

Ljósmyndun tók hug minn allan árið 2007 þó ég hafi alltaf haft áhugan... Mitt helsta viðfangsefni er náttúran og veit ég fátt yndislegra en að vera ein úti í náttúrunni með myndavélina.

Ég byrjaði 6ára gömul að spila á fiðlu og var í Tónlistarskóla Akureyrar í mörg mörg ár... Ég elska tónlist og veit ekki hvar ég væri án hennar. Hef mjög gaman af því að fara á tónleika og reyni að gera eins mikið af því og mögulegt er.

Árið 2011 ákvað ég að nú skyldi ég læra að prjóna og hekla. Ég hef verið gjörsamlega óstöðvandi síðan... Það er eitthvað við þessa handavinnu sem fær mann til að halda endalaust áfram og mér líður stundum einsog ég sé í keppni við sjálfan mig þegar ég er að, ég verð svo sjúklega spennt yfir útkomunni að ég varla hef tíma til að sofa!

Fyrir 5árum var ég komin með ógeð af sjálfri mér og tók líf mitt í gegn og breytti algjörlega um lífstíl. Ég skipti um mataræði og fuku af mér 26kg. Ég fór í kjölfarið að hreyfa mig meira. Ég fór í það að hlaupa og hjóla. Sumarið er því minn besti tími, þegar ég get tekið hjólið út og tekið hjóltúr út úr bænnum og komist í snertingu við náttúruna.

Sumarið 2011 byrjaði ég síðan að veikjast... Greindist með æxli í febrúar 2012... Fór í endalaust margar rannsóknir í þessa 15mánuði og endaði á að fara í mjög stóra aðgerð 9.október 2012.

Ég elska lífið og finnst ég vera einstaklega heppin. Er búin að fá að ganga í gegnum og upplifa ótrúlega hluti í lífinu, meira en ég ætti að þurfa og þar af leiðandi búin að læra heilan helling á lífið... Ég kem útúr þessu öllu sem betri manneskja, sáttari við sjálfan mig, lífið, allt og alla. Tilbúin fyrir hvað sem er... Nú er bara að nýta það sem ég hef lært.

Lífið er frábært og núna er komið að mér að njóta þess:)