Það er eiginlega best í heimi þegar sá dagur kemur þegar maður fær ógeð, svona virkilega mikið ógeð á því hvernig allt lífið gengur fyrir sig hjá sér, að manni þyrstir í breytingu og drifkrafturinn hellist yfir.
Það er á svoleiðis stundum sem ég tek lífið mitt í gegn, laga aðeins til í því og hagræði betur til í hreyfingu, mataræði og yfirhöfuð bara öllu.
Ég skrifaði lista... Nokkra reyndar (kemur á óvart)... Lista yfir hvern einasta dag, þar stendur t.d. hvað ég á að borða hvenær, hvenær ég æfi, tékklisti yfir það sem ég þarf að gera á hverjum degi og hvaða vítamín ég tek og fleira og fleira... Þetta eru frekar nákvæmir listar en nauðsynlegir og rosalega þægilegir... Ég þarf á þeim að halda núna... Og það er ekkert lítið leiðinlegt að strika yfir atriðin sem maður er búin með á hverjum degi.
Kannski mestu breytingarnar séu þær að ég ætla að sleppa nammi algjörlega, ég tók alltaf einn sukk dag í viku en núna ætla ég að breyta, núna má ég ekki sukka svona svakalega, en einu sinni í viku má ég fá mér ís, köku eða einhvern sjúklega góðan óhollari mat.... Engin sykur annars og ekkert hveiti heldur (einsog alltaf)... Ástæða þess að ég hef tekið út nammið er bæði sú að ég hef ekki getað séð nógu mikinn árangur hjá mér síðan í sept og svo líka sú að ég er held ég bara hreinlega fíkill, því ef ég fæ einn súkkulaðibita þá þarf ég allt súkkulaðistykkið og meira til.... Og síðan get ég ekkert hætt og þessi eini sukk dagur verða oftast 3! Það er ekki í boði...
Málið er nefninleg að ég fékk ógeð af því að vera endalaust veik... Er búin að vera meira og minna lasin síðan miðjan desember og lítið getað æft í 2og hálfan mánuð. Ég var komin á ágætis skrið fyrir það og elskaði að geta farið alltaf 5x í viku á æfingar, hinir tveir dagar vikunnar voru eiginlega bara leiðinlegir.
En núna bara ætla ég að hætta að vera lasin.... Núna ætla ég að verða frísk.... Þetta er ekkert flókið mál! Núna ætla ég að losna við þessa fitu (finnst 3kg ekki ásættanleg tala á hálfu ári, þó ég sé búin að öðlast meiri styrk)... Fá flotta vöðva og líða sjúklega vel... Núna ætla ég að gera virkilega allt sem ég get til að hætta að vera lasin ;)
Ég segi hér með upp veikindum.... Núna er ég hætt!
Ég ætla að massa þetta... Svona fyrir alvöru!
*Sólveig H.