![]() |
| Sjúklega káta ég ásamt vinkonu minni eftir útihlaupið í morgun |
Viljinn fyrir því að ná árangri/líða vel þarf að vera rosalega mikill, þetta þarf að vera í 1.sæti hjá manni, heilsan í 1.sæti og allt annað þar á eftir... Sama hvað! Maður þarf að virkilega, virkilega vilja hlutina sem maður stefnir að, hafa óbilandi trú á sjálfum sér og vera harður við sig. Það er engin að fara gera þetta fyrir mann og maður einn tapar á því að svindla og þannig nær engin árangri! Ganga alltaf einu skrefi lengra í hverri viku! Vera extra bjartsýnn og njóta þess! Setja sér stór markmið og lítil markmið og fagna þegar maður bætir sig, gleðjast yfir minnstu framförum og virkilega leyfa sér að vera glaður og montinn með sig... Ef maður sjálfur er það ekki, þá getur maður ekki ætlast til að neinn annar sé það...
Í dag ætla ég líka að reyna bæta mataræðið en meira... Minn eðlilegi lífstíll er að borða ekkert hveiti og engin sykur... Með nokkrum undartekningum, veislur, hátíðir og þess háttar... Hinsvegar verð ég að viðurkenna að núna eftir áramótin hef ég ekki náð að halda mínum lífstíl, hef sótt óeðlilega mikið í sykur, líklega vegna orkuleysis og því sótt yfir í gerviorkuna eða ekki verið heldur nógu ströng við sjálfan mig og því notað rosalega mikið settninguna "æ ég á þetta svo skilið"! Í dag er ég nokkuð vissum að ég þurfi ekkert á þessari gerviorku að halda lengur og ég veit ekki afhverju ég ætti að eiga hana skilið heldur... Sérstaklega þar sem hún skemmir frekar fyrir helduren hitt, finnst mér ég eiga skilið að borða sykur og láta hann fara illa með mig? Nei einmitt ég hélt ekki! Í dag ætla ég að hætta þessu rugli og taka næstu 12daga með hörku, ég ætla vera ströng! Þetta eru nú bara 12dagar (til að byrja með) og það er nú ekki flókið!
*Sólveig H.

Vá, hvað það er gaman að sjá hvað þú ert á flottri braut elskan mín! Þú ert hvetjandi fyrir okkur hin! :)
SvaraEyða