Þetta hér er án nokkurs vafa minn uppáhalds hlutur í heklinu....
Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta semsagt gúmmí sem maður setur upp á heklunál. Áðuren ég fór að nota þessi gúmmí var ég alltaf komin með þvílíkan þreytu/spennu verk í höndina af því að halda á þessum mjóu heklunálum í smá stund.
Eftir að ég fór að nota gúmmíin, þá hef ég aldrei fundið fyrir þessum þreytuverk. Beytingin á heklunálinni helmingi betri og að mínu mati þæginlegra á allan hátt.
Hægt er að fá þessi gúmmí í tveim stærðum að 4,5mm og frá 5,00mm, þegar maður setur þau uppá heklunálina er best að setja örlítin uppþvottalög hjá gatinu, þá rennur heklunálin betur inní. Best að nota eitt gúmmí fyrir hverja stærð...
Gúmmín fást keypt t.d. í Handprjón í Hafnarfirði og Quiltbúðinni Akureyri.
Algjör nauðsyn og munar lygilega miklu!
*Sólveig H.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli