mánudagur, 19. nóvember 2012

Dauðans alvara, mættu í tékk!

Hér er grein á mbl.is sem segir frá því að konur eru ekki að mæta nægilega vel í leghálsskoðun!
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/11/19/maeta_verr_i_krabbameinsskodun/

Ég persónulega varð sjúklega stressuð fyrir því að fara í slíka skoðun á sínum tíma en fór nú samt með kúkinn í buxunum og langaði mest til að hlaupa út þegar ég heyrði að nafnið mitt var kallað upp, svo ég skil þessa hræðslu alveg. Málið er bara það að krabbameinsskoðun er það alvarlegt mál þó að í rauninni ætti þetta að vera hinn sjálfsagðasti hlutur hjá okkur að fara.

Eitt finnst mér þó furðulegt, það er hvernig standi á því að það sé svona langur biðtími í þessa skoðun, ef það er ekki nægilega góð mæting, hvernig væri eiginlega biðtími eftir tíma ef allar konur myndu mæta? Einsog ég sé þetta þá virðast þeir ekki anna eftirspurn nú þegar. Að mínu mati væri ekki vitlaust að laga fyrirkomulagið á þessum skoðunum, mætingar prósentan myndi örugglega ekki versna mikið við það.

Þrátt fyrir biðtíman og hræðsluna og hvað það nú er sem stoppar kvennmenn fyrir því að mæta... Hvað er að, afhverju í ósköpunum mæta konur ekki í tékk! Þetta er ekkert djók, þetta er dauðans alvara og kannski bara afþví þú nenntir hreinlega ekki í þessa blessuðu krabbameinsskoðun, þá þurfa allir aðrir sem þú þekkir að mæta á jarðaför... Þó þeir nenni því ekki! Lífið snýst heldur ekki bara um okkur sjálf, það snýst líka um okkar nánustu, fólkið í kringum okkur... Sem gerir allt til að hjálpa manni á erfiðum stundum. Þú vilt ekki að fólkið þitt þurfi að horfa uppá þig berjast fyrir lífi þínu...

Það er alveg sama hvar eða hvernig æxli þú færð, þetta er alltaf fúlasta alvara, þetta er eitthvað sem þú óskar engum að þurfa að ganga í gegnum. Við eigum að vera þakklát fyrir að þessi skoðun sé yfirhöfuð í boði fyrir okkur....

Plís (afsakið) drullist í skoðun áðuren það er um seinan!

*Sólveig H.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli