fimmtudagur, 15. nóvember 2012

Hugmynd í hausnum


Það sem fæstir vita er að ég elska að skrifa og ég skrifa stanslaust... Mis gáfulegt auðvita. Undafarin ár hef ég einungis skrifað fyrir mig eina og engan annan. Mörgum finnst það sjálfsagt furðulegt hversu gaman mér finnst að skrifa því ég hef sjálf aldrei haft neitt sérstaklega gaman af því að lesa, það er þá helst áhugaverðir pistlar á netinu sem ég afreka, bækur hafa aldrei heillað mig mikið... Kannski er ástæðan fyrir því sú að ég er með athyglisbrest og lesblindu og því alveg einstaklega hæglæs og oftast líka löngu búin að missa þráðin áðuren ég kemst í gegnum eina blaðsíðu.
Hinsvegar vaknaði ég með þá hugmynd í hausnum í morgun að búa mér til nýja blogsíðu... Svo hér ætla ég mér að tjá mig um lífið og tilveruna, hreyfingu, prjónamennsku og hekl, ljósmyndun, veikindi mín, tónlist og ýmislegt fleira sem mér liggur á hjarta og dettur í hug.

*Sólveig H.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli