Mig langar rétt að segja ykkur frá því að brandara lífs míns er nú víst ekki lokið enþá!
Eins bjartsýn og ákveðin ég var í því að þessu væri nú öllu saman loksins lokið, ég væri búin með minn skammt, ég ætti skilið frí frá öllum veikindum og veseni núna... Varð ekki alveg að veruleika....
Síðustu 2 mánuði hef ég af og til fengið smá verk í brisið, sem þótti nú svossem ekkert mikið óeðlilegt, stór aðgerð og allt gæti enþá verið að jafna sig! En mánudaginn fyrir viku síðan fékk ég verk sem var stöðugur allan daginn og næsta dag líka... Ég fór að hafa einhverja skrítna tilfinningu fyrir þessu öllu, þar sem þetta líktist gamla verknum og ég fékk hita og fleiri einkenni með. Ég dreif því í að hafa samband við sérfræðinginn minn hér fyrir norðan. Hann sendi mig beinustu leið í blóðprufu, síðan þvagprufu og næst sneiðmynd og síðan á þriðjudag var ég kölluð í viðtal hjá lækninum.
Þessi sérfræðingur minn er alveg frábær, veit sínu viti, er hress og skemmtilegur og er búin að veita mér alveg pörfekta þjónustu, allt er búið að vera í þvílíkri flýtimeðferð, hann sagðist bara alls ekki vilja bíða með þetta mál neitt! Þegar ég kom til hans í viðtalið, fann ég strax á honum að hann var búin að skoða myndirnar og það væri eitthvað sem væri ekki alveg í lagi. Hann spurði mig þannig spurninga og skoðaði mig þannig en nefndi aldrei neitt fyrren spurningum og skoðun var lokið. Ég fann það var eitthvað og beið óþolinmóð eftir að það kæmi að efninu einsog lítið barn í röð í ísbúð... Síðan kom hann sér loksins að efninu. En allt staðfesti þetta að ég væri semsagt hvorki orðin geðveik né móðursjúk einsog ég var orðin pínu hrædd um (en samt hefði það nú verið ef til vill skárra að einhverju leiti), heldur var eitthvað þarna í raun og veru og því raunverulegir verkir á ferð. Ég fékk að sjá myndirnar, fyrir aðgerð og svo þær nýjustu, ótrúlega flott að sjá svona myndir, eiginlega stórmerkilegt! Brisið var alveg hreint og fínt en hliðiná brisinu, á staðnum sem brisið er ekki lengur, þar var eitthvað að sjá á myndunum. Eitthvað sem þeir ekki vita hvað er. Ég fékk tillögur að því hvað þetta hugsanlega gæti verið... Hugsanlega möguleiki á að þetta sé blæðing og kölkun í blæðingu eða eitthvað allt annað. Allavega lítur þetta allt öðruvísi út en æxilð sem var tekið, svo það er gott. Þannig jæja, fleiri rannsóknir verða gerðar til að komast að niðurstöðu í þessu nýja máli.
Sérfræðingurinn minn ætlar einnig að senda skurðlækninum mínum fyrir sunnan myndirnar af mér sem og röntgenlæknunum fyrir sunnan til að fá álit þeirra á þessu.
Nú næst á dagskrá er nokkra daga bið eftir að fara í segulómskoðun næstkomandi mánudag og síðan viðtal þegar niðurstöður eru komnar úr því.
Lífið ætlar greinileg að halda mér áfram í góðri þjálfun í heilbrigðiskerfinu, bjartsýninni, auðmýktinni og öllu þessu ;)
*Sólveig H.
Gangi þér sem allra best Sólveig mín - þú ert algjör hetja að geta skrifað um þetta af þessu mikla æðruleysi - þó eflaust séu þetta mjög erfiðir tímar. Það er eflaust bæði betra fyrir þig og svo þá sem fylgjast með að fá þetta svona ,,beint í æð". Bestu kveðjur frá mér og krökkunum. Anna Kristín
SvaraEyðaEn eitt krefjandi verkefni til að klára. Þú verður orðin prófessor í þessu öllu saman :) Gangi þér vel vina mín.. Kv Harpa R.
SvaraEyða