Það er komin svo mikill útivistarfílingur í mig... Mig langar út að hjóla á hverjum einasta degi... Hjóla eitthvað langt í burtu, hlusta á náttúruna og horfá fegurð landsins, gleyma mér algjörlega. Ég elska það hreinlega!
Bráðum fer að styttast í að ég fari að klára markmið sumarsins, markmiðið sem ég setti mér fyrir ári síðan og markmið sem ég var fast ákveðin í að ná þó ég væri búin að fara í risa aðgerð.... Að hjóla frá Akureyri yfir á Lauga í Reykjadal... Það ættu að vera ca 72km! Ég er hreint út sagt farin að hlakka bara til... Er búin að setja mér fyrir nokkrar hjólaferðir sem ég þarf að klára fyrir þá ferð, svo ég verði ágætlega undirbúin. En stefnan er að leggja í hann seinnihlutan í júní!
Ég er búin að hjóla Eyjafjarðarhringinn 2x og hjóla nokkrum sinnum inn í Eyjafjörð og til baka í þessum mánuði.... Ég hugsa í hvert einasta skipti sem ég hjóla þarna, afhverju það sé ekki löngu búið að græja fyrir mig (og kannski aðra) einsog einn hjóla/göngu stíg inn að Hrafnagili? Í hvert og eitt einasta skipi þegar ég fer þessa leið, mæti ég einhverjum öðrum á hjóli eða skokkandi.... Þetta er fáránlega vinsæl leið að fara. Ég hef heyrt að fólk þoli ekki þetta hlaupa og hjólafólk þarna og svo framvegis... En mér er svossem skít sama um það, fólk víkur vel fyrir mér og er almennt kurteist, ég veit það skiptir líka máli að vera í endurskins vestum eða einhverskonar neon litum, það hefur áhrif á kurteisi ökumanna. Veit þó að það er til óheiðarlegt fólk í þessum heimi sem mögulega gæti keyrt mig niður, þó svo ég sé alls ekki að hugsa um það í hjólaferðunum, því þá gæti ég alveg eins sleppt því að fara! Ég persónulega væri semsagt mjög til í að sjá þarna gerðan stíg, bæði það að þetta er einsog ég sagði vinsæl leið og þetta myndi verða ökumönnum og útivistarfólki þvílíkur lúxus og algjört öryggi!
Ég hugsa mikið þegar ég er að hjóla, um allskonar hluti... Ég hugsa stundum hvort þeir á bílunum séu að hugsa hvað ég sé feit, eða með stóran rass þegar ég hjóla... En svo man ég.. "Æ einsog mér sé ekki skít sama hvað þetta fólk er að hugsa... Það er ég sem er að hreyfa mig en ekki þau!!"
*Sólveig H.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli